Fotbolti.net
24.11.26 - 13:52
Elvar Geir Magnússon

Algjört klúður ef Alonso nær ekki Meistaradeildarsæti

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

„Xabi Alonso kom til Chelsea sem tákn um stefnubreytingu hjá félaginu. En næstum sex mánuðum eftir að hann tók við virðist hann vera að fara sömu leið og of margir forverar hans," skrifar John Cross, yfirmaður fótboltamála Mirror.

Eftir ellefu umferðir hefur Chelsea unnið fimm leiki og tapað fimm. Spjótin hafa skyndilega beinst að Alonso eftir 4-1 tap gegn Leeds.
„Það er engin afsökun fyrir Alonso að ná ekki Meistaradeildarsæti á þessu tímabili. Allt minna væri algjört klúður. Enginn getur sakað eigendurna um að styðja ekki stjórann. Þeir borguðu 117 milljónir punda fyrir Morgan Rogers. Hann með Cole Palmer og Joao Pedro á að vera ein besta framlína deildarinnar."

„Þegar ljóst varð að markmannsstaðan yrði vandamál fékk félagið Emiliano Martinez. Chelsea hafði þegar samið við reynslumikla leikmenn eins og Danny Welbeck og Jordan Henderson, svo það er ekki lengur hægt að segja að hópurinn sé of ungur og óreyndur. Þeir hafa í raun gefið Alonso það sem hann vill og það sem hann þarf til að ná árangri. Lok félagaskiptagluggans varð martröð því þeir seldu Enzo Fernandez til Manchester City og fengu að lokum engan eftirmann."

„Hluti aðdáenda er þegar farinn að láta óánægju sína í ljós og hróp eins og „Þið vitið ekki hvað þið eruð að gera" ómuðu gegn Leeds. Chelsea veit ekki hvernig besta byrjunarlið þeirra er. Vörnin hefur verið í molum. Og þeim skortir sjálfsmynd. Félagið er ekki þekkt fyrir þolinmæði og Alonso verður að byrja að sýna merki um framfarir, annars er augljóst hvað gerist næst."
John Cross, íþróttastjóri Mirror.

John Cross, íþróttastjóri Mirror.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.