Fotbolti.net
24.11.26 - 17:34
Brynjar Ingi Erluson

Iraola: Gravenberch er ekki á góðum stað

Iraola: Gravenberch er ekki á góðum stað
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Cody Gakpo og Ryan Gravenberch verða áfram fjarri góðu gamni hjá Liverpool þegar liðið heimsækir Club Brugge í Meistaradeild Evrópu á morgun.
Gravenberch hefur misst af síðustu leikjum Liverpool vegna meiðsla, en Gakpo meiddist í síðasta landsliðsverkefni. Báðir voru fjarverandi þegar Liverpool vann 4-0 stórsigur á Manchester United um helgina.

Þeir verða heldur ekki með á morgun og missa einnig af nágrannaslagnum gegn Everton um næstu helgi.

„Þetta eru ekki alvarleg meiðsli hjá Cody, en hann verður samt ekki með um helgina,“ sagði Iraola.

Staðan á Gravenberch er hins vegar töluvert verri og gat Iraola ekki sagt til um hvenær hann myndi snúa aftur.

„Það er erfitt að segja til um það með Ryan. Hann finnur enn fyrir verkjum og við höfum átt erfitt með að ná tökum á þeim. Stundum tekst honum að halda verkjunum í skefjum, en hann er ekki á góðum stað. Þetta eru erfið meiðsli að eiga við,“ sagði Iraola ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.