Fotbolti.net
24.11.26 - 15:28
Kári Snorrason

Vill endurtaka leikinn með Óskari - „Líklegast á lægsta punkti ferilsins og í lífinu“

Auglýsing
Skorar gegn KR í sumar.

Skorar gegn KR í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe gekk til liðs við KR frá ÍBV fyrr í vetur á frjálsri sölu. Þessi 26 ára gamli Gambíumaður hefur leikið á Íslandi frá árinu 2022 og endurnýjar nú kynnin við Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem fékk hann til Breiðabliks frá New York Red Bulls fyrir fjórum árum.

Hann spilaði alls 28 leiki fyrir ÍBV og skoraði í þeim tíu mörk, en Omar sneri aftur til baka eftir krossbandaslit í sumar.

Fótbolti.net ræddi við Omar um vistaskiptin og komandi tímabil í Vesturbænum.
Omar Sowe kominn í KR (Staðfest)
TENGT EFNI

Omar Sowe kominn í KR (Staðfest)

Vill endurtaka leikinn með Óskari
„Það er frábært að vera hluti af sögufrægu félagi. Sigursælasta lið landsins, ég er mjög ánægður að hafa tekið þetta skref,“ segir Omar og var í kjölfarið spurður út í Óskar.

„Hann veit hvernig á að ná því besta úr leikmönnum. Síðast þegar ég var hjá honum gerðum við frábæra hluti saman, vonandi getum við endurtekið það á næsta ári,“ segir Omar en þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn saman hjá Breiðabliki árið 2022.

„Við eigum í góðu sambandi. Hann er heiðarlegur og beinskeyttur. Sem leikmaður vill maður það frá þjálfaranum. Hann er með skýr skilaboð um hvað hann vill. Ég hef ekki spilað undir honum síðan ég var hjá Breiðabliki en hann sér greinilega eitthvað sem honum líkar við hjá mér,“ segir Omar jafnframt um Óskar.

Erfiðir tímar í Vestmannaeyjum
Omar sleit krossband í byrjun sumars 2025 en sneri aftur á völlinn um mitt tímabil í ár. Hann segir tímann í Vestmannaeyjum hafa verið gefandi en um leið krefjandi.

„Ef ég á að vera heiðarlegur þá var þetta erfitt. Þetta var ekki venjulegt líferni fyrir mig persónulega. Þetta er mjög rólegt og ekki það mikið að gera. Ég lærði mjög mikið um sjálfan mig og lífið heilt yfir. Fólkið í Vestmannaeyjum er frábært og samfélagið er mjög samheldið. Þau sjá um hvort annað og gerðu allt fyrir mig, sérstaklega þegar ég var meiddur.

Ég var líklegast á lægsta punkti ferilsins og í lífinu en þegar ég horfi til baka er ég þakklátur fyrir fólkið sem var í kringum mig og hlutina sem þau gerðu fyrir mig. Ég verð þeim ævinlega þakklátur og ÍBV verður alltaf mér í hjartastað. Þegar ég á við erfitt þá meina ég að þetta var ekki fyrir mig. En þetta hjálpaði mér að verða betri leikmaður og persóna. Ég varð einbeittari, það var ekki mikið áreiti svo ég tek það úr þessu. Þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt er ég ánægður að hafa verið í Vestmannaeyjum.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Við undirskrift hjá KR.

Við undirskrift hjá KR.

Canon

Mynd: KR

„Síðast þegar ég var hjá honum gerðum við frábæra hluti saman, vonandi getum við endurtekið það á næsta ári.“

„Síðast þegar ég var hjá honum gerðum við frábæra hluti saman, vonandi getum við endurtekið það á næsta ári.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erfiðir en gefandi tímar í Vestmannaeyjum.

Erfiðir en gefandi tímar í Vestmannaeyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.