24.11.26 - 17:54
Brynjar Ingi Erluson
Ferdinand: Vandræðaleg niðurstaða fyrir VAR

Leny Yoro sá rautt gegn Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Leny Yoro sá rautt gegn Liverpool

Mynd: EPA
Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segir VAR hafa komið afar illa út úr leik liðsins við Liverpool um helgina.

TENGT EFNI
Leikbanni Yoro aflétt
Leny Yoro var rekinn af velli eftir aðeins nokkurra mínútna leik þegar Manchester United steinlá 4-0 fyrir Liverpool á Anfield.
Yoro braut þá á Alexander Isak sem var að sleppa í gegnum vörn United og fékk að líta rauða spjaldið. Ákvörðunin var í kjölfarið staðfest af VAR.
Mikil umræða skapaðist strax um brotið og hvort rauða spjaldið hefði verið réttlætanlegt. Fyrsta snerting Isak á boltanum var nefnilega ekki góð og boltinn kominn nokkuð langt frá honum þegar Yoro braut á honum. Því var deilt um hvort Svíinn hefði í raun verið sviptur upplögðu marktækifæri.
Margir töldu að gult spjald hefði dugað, en Yoro var sendur af velli og Dominik Szoboszlai skoraði beint úr aukaspyrnunni sem fylgdi. Liverpool nýtti sér síðan liðsmuninn og gekk frá leiknum.
Nú hefur rauða spjaldið verið fellt úr gildi eftir áfrýjun United og Ferdinand segir málið afar vandræðalegt fyrir VAR.
„Ég er í sjokki. Enn ein afsökunarbeiðnin á leiðinni. Við þurftum að spila 85 mínútur með tíu menn á Anfield.“
„VAR var tekið upp til að koma í veg fyrir dómaramistök og það er augljóslega ekki að virka. Þetta eru tveir leikir á þessu tímabili, gegn Man City og Liverpool, sem stuðningsmenn um allan heim fylgjast með. Þetta er vandræðalegt,“ skrifaði Ferdinand á X.

Shock… another apology.
— Rio Ferdinand (@rioferdy5) November 24, 2026
85 mins playing with 10 men away at Anfield ????????????????????????
The VAR was brought in to stop referee errors, clearly not working.
Two games this season (vs Man City / vs Liverpool) where global football fans are watching, embarrassing!

Mynd: EPA