Tottenham vill Summerville - Juventus með augastað á Brobbey

Summerville hefur verið sjóðheitur síðustu misseri.

Mynd: EPA

Brobbey skorar gegn Svíum.

Mynd: EPA

Mögulega áfram í Liverpool.

Tottenham ber víurnar í Summerville, Juventus vill Brobbey og Jurgen Klopp hefur áhuga á að taka við þýska landsliðinu. Þetta og margt annað í slúðurpakka dagsins.
Tottenham ætlar að reyna að fá hollenska sóknarmanninn Crysencio Summerville (24) frá West Ham. Lundúnaliðið hefur þegar fengið portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes (21) frá föllnum Hömrum. (GiveMeSport)
Juventus skoðar hollenska framherjann Brian Brobbey (24), leikmann Sunderland, sem varakost ef ekki tekst að semja við franska framherjann Randal Kolo Muani (27), leikmann PSG. (TuttoMercatoWeb)
Everton hefur augastað á miðjumönnunum Pape Gueye (27) hjá Villarreal og Mandela Keita (24) hjá Parma ef Idrissa Gana Gueye (36) skrifar ekki undir nýjan samning. (TeamTalk)
Aston Villa hefur áhuga á Ilaix Moriba (23), miðjumanni Celta Vigo, og undirbýr tilboð upp á 15 milljónir punda. (Football Insider)
Curtis Jones (25) gæti verið áfram hjá Liverpool þar sem enski miðjumaðurinn hefur lítinn áhuga á að ganga til liðs við Nottingham Forest og Inter ræður ekki við verðmiðann. (Liverpool Echo)
Coventry er við það að semja við svissneska varnarmanninn Aurèle Amenda (22) frá Eintracht Frankfurt. Hann yrði fyrsti leikmaður félagsins eftir endurkomuna í ensku úrvalsdeildina. (talkSPORT)
Atlético Madrid mun ekki selja argentínska framherjann Julián Álvarez (26) þrátt fyrir áhuga Barcelona. (Fichajes)
Jürgen Klopp (59) hefði áhuga á að taka við þýska landsliðinu ef Julian Nagelsmann (38) lætur af störfum í kjölfar falls Þjóðverja úr leik á heimsmeistaramótinu. (Fabrizio Romano)