Fotbolti.net
22.07.26 - 14:21
Kári Snorrason

ÍA tapað tólf stigum úr sigurstöðu - „Menn ekki í standi“

ÍA tapað fimm leikjum í röð.

ÍA tapað fimm leikjum í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skagamenn hafa hvað eftir annað misst niður forystu í Bestu deildinni í sumar og tapað samtals tólf stigum hafandi verið yfir.

Vakin var athygli á slæmu gengi Skagamanna seinni hluta leiks í Innkastinu á mánudag. „Þetta er mynstur og sýnir að menn séu ekki í standi,“ sagði Jóhann Skúli Jónsson í Innkastinu.

ÍA tapaði sínum fimmta deildarleik í röð er þeir mættu Keflavík á mánudag. Liðið situr í níunda sæti, þremur stigum frá fallsæti.

Í samtali við Fótbolta.net í gær sagði Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, ekki möguleika á að félagið ráðist í þjálfarabreytingar og telur hann vanta stöðugleika í liðið.
Ekki möguleiki á þjálfarabreytingum uppi á Skaga
TENGT EFNI

Ekki möguleiki á þjálfarabreytingum uppi á Skaga

Leikir sem ÍA hefur misst niður:
KA 3-2 ÍA, 12. júlí
Leiddu 2-1 þar til á 62. mínútu

ÍA 1-2 Breiðablik, 4. júlí
Leiddu 1-0 þar til á 64. mínútu

KR 5-3 ÍA, 22. júní
Staðan 3-3 þar til á 83. mínútu

ÍA 2-2 ÍBV, 21. maí
Leiddu 2-0 þar til á 68. mínútu

Víkingur R. 4-0 ÍA, 27. apríl
Staðan 0-0 þar til á 56. mínútu

ÍA 1-1 KA, 22. apríl
Leiddu 1-0 þar til á 70. mínútu

Fram 3-3 ÍA, 12. apríl
Leiddu 3-1 þar til á 76. mínútu
Með fullan stuðning framkvæmdastjórans.

Með fullan stuðning framkvæmdastjórans.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Misstu niður 2-1 forystu gegn KA fyrr í mánuðinum.

Misstu niður 2-1 forystu gegn KA fyrr í mánuðinum.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Töpuðu gegn KR.

Töpuðu gegn KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.