Fotbolti.net
22.07.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Æfingu aflýst og aukin öryggisgæsla hjá Úlfunum

Arokodare í leik með Wolves.

Arokodare í leik með Wolves.

Canon

Mynd: EPA

Hætt var við æfingu Wolverhampton Wanderers í gær eftir að nígeríski sóknarmaðurinn Tolu Arokodare neitaði að yfirgefa æfingavöllinn. Cesar Peixoto, nýr stjóri Wolves, vill ekki hafa Arokodare með liði sínu.

Aukin öryggisgæsla var á æfingasvæðinu í dag til að koma í veg fyrir að Arokodare myndi mæta á æfinguna.
Úlfarnir höfnuðu tilboði frá Fiorentina
TENGT EFNI

Úlfarnir höfnuðu tilboði frá Fiorentina

Arokodare hefur verið slakur hjá Úlfunum síðan hann var keptur frá Genk fyrir 23,4 milljónir punda. Liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og vill selja Arokodare sem fór ekki með liðinu í æfingaferð til Portúgals nýlega.

Samkvæmt fréttum þá samþykkti Wolves tilboð frá tyrkneska félaginu Trabzonspor en leikmaðurinn sjálfur hafnaði. Áður hafði enska félagið hafnað tilboði frá Fiorentina þar sem það þótti ekki nægilega gott. Genoa og Pisa, sem féllu úr ítölsku A-deildinni, hafa líka sýnt honum áhuga.

Það neistar milli Wolves og Arokodare og gæti málið farið á borð FIFA sem hefur tekið í notkun nýjar reglur til að verja samningsbundna leikmenn. Samkvæmt reglum mega félög ekki þvinga leikmenn frá æfingum nema gild ástæða sé til.

Mexíkóski landsliðsmaðurinn Raul Jimenez gekk að nýju í raðir Wolves í sumar og Arokodare er ekki í áætlunum Peixoto.
Æfingu aflýst og aukin öryggisgæsla hjá Úlfunum
Canon

Mynd: Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.