02.08.04 - 11:35
Hafliði Breiðfjörð
Luke Chadwick til West Ham (Staðfest)




West Ham hafa fengið til liðs við sig Luke Chadwick miðvallarleikmann Manchester United á frjálsri sölu. Chadwick sem er 23 ára gamall mun undirgangast læknisskoðun hjá félaginu í dag og ganga svo frá eins árs samningi við félagið. Chadwick kom til United árið 1999 en vann sér aldrei inn fast byrjunarliðssæti. Hann hefur spilað 12 leiki fyrir U-21 árs landslið Englendinga en hann hefur áður spilað fyrir Alan Pardew stjóra West Ham er hann var hjá Reading og fékk leikmanninn á láni frá United. Chadwick var síðustu leiktíð á láni hjá Burnley.
