Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 17:30
Elvar Geir Magnússon
Idrissa Gueye: Ekki til betri tilfinning en að snúa aftur heim
Idrissa Gueye er þrítugur.
Idrissa Gueye er þrítugur.
Mynd: Getty Images
Idrissa Gueye er kominn aftur til Everton en hann gekk í raðir félagsins frá PSG. Stuðningsmenn þeirra bláu fagna þessu innilega enda er hann einmitt sú gerð af miðjumanni sem liðinu hefur vantað.

„Það er ekki til betri tilfinning en að snúa aftur heim, hitta bræður sína aftur. Ég er mjög ánægður með að vera hér og geta hjálpað. Ég mun leggja mikið á mig og gefa sál mína til liðsins. Ég er kominn heim," sagði Gueye.

Everton er aðeins með þrjú stig eftir fimm leiki og á erfiðan hádegisleik á morgun, grannaslag gegn Liverpool.

„Ég þekki alla hérna og hef fylgst með liðinu í hverri viku. Ég veit ekki um betri stað en Everton og því kom ég aftur hingað. Það er frábært andrúmsloft í kringum leikvanginn og allir eru eins og ein fjölskylda."
Athugasemdir
banner
banner