17.09.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leitaði til töfralæknis í Danmörku - „Ljúft að geta sýnt hvað maður getur"

Markinu gegn Keflavík fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Víking.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markinu gegn Keflavík fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin eftir síðasta leik er mjög góð, gott að spila 90 mínútur og ná að skila góðri frammistöðu til liðsins," segir Róbert Orri Þorkelsson sem stóð vaktina í vörn Víkings gegn Keflavík á mánudagskvöld.
„Robbi var virkilega flottur í leiknum, gott líka fyrir hann að skora, en ég lít frekar á varnarframmistöðuna hans í leiknum, hún var mjög góð, hann var frábær á bolta. Þannig að það var hrikalega gaman að sjá Robba eiga svona góðan leik," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net eftir leikinn.
Róbert hefur mikið verið frá vegna meiðsla undanfarin ár en er í dag heill heilsu og getur ekki beðið eftir næstu leikjum.

„Ég er búinn að vera í smá brasi með nárann í gegnum tíðina og hafa þau meiðsli haldið mér frá í dágóðan tíma. Meiðsli sem áttu að taka mun styttri tíma, og þetta hefur verið mjög langþreytt. Það er erfitt að vera fótboltamaður og geta lítið spilað. Það er því ljúft núna að geta sýnt hvað maður getur inn á vellinum aftur og ég get ekki beðið eftir næsta leik."
„Ég leitaði til töfralæknis í Danmörku, sami og sá sem nokkrir úr liðinu hafa einnig séð. Ég var á sjúkrabekknum hjá honum í nokkra klukkutíma og hann var að greina meiðslin. Ég fékk svo styrktarprógram hjá honum í kjölfarið."
„Ég meiddist í fyrsta leik eftir að ég samdi við Víking sem setti strik í reikninginn. Ég meiddist núna aftur í maí, fékk svo tækifærið gegn Þór en meiddist á mjög klaufalegan hátt þar akkúrat þegar tækifærið kom. Það var mjög svekkjandi en ég sneri til baka þremur vikum síðar og hef blessunarlega haldist heill."
„Í fyrra náði ég góðum kafla þar sem ég var í liðinu, spilaði talsvert um miðbik móts en svo mynduðu Gunnar og Oliver besta miðvarðapar deildarinnar og það er erfitt að kvarta þegar liðið vinnur alla leiki og Sveinn Gísli að spila vel líka þegar hann kom inn."
„Núna er Gunnar farinn til Danmerkur og Sveinn Gísli er meiddur, þá er það mitt að sýna hversu góður ég er og minna á mig. Ég þarf að sýna að ég geti haldist heill og vinna upp traust í þeim þætti líka."
Róbert Orri skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Víking gegn Keflavík. Markið kom eftir aukaspyrnu sem teiknuð var á æfingasvæðinu.
„Við vorum þrír örvfættir inn á vellinum, Helgi tók spyrnuna og ég átti að vera í þessu svæði. Ég náði að hitta boltann vel og það skemmdi ekki fyrir að þetta fór í slána og inn, og svo aftur í slána. Gott mark. Þetta var annað markið mitt í Bestu deildinni, það fyrsta kom árið 2020," segir Róbert Orri sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Víking í fyrra í Evrópuleik.
Eftir leikinn á mánudag, hvort leitaði hugurinn fyrst í markið sem þú skoraðir eða markið sem þið fenguð á ykkur?
„Ég viðurkenni að ég hugsaði fyrst um markið mitt, en sem varnarmaður svíður alltaf að halda ekki hreinu í svona leik. Við viljum halda hreinu og þetta var óþarfa mark að fá á sig."
Framundan hjá Víkingi eru fjórir síðustu leikirnir í deildinni og getur liðið unnið deildina með sigri á KR á laugardag.
„Ég horfi í það að ég ætla halda áfram að grípa tækifærið, sýna að ég get haldist heill og verið mikilvægur partur af liðinu," segir Róbert Orri að lokum.