Fotbolti.net
16.09.26 - 13:35
Elvar Geir Magnússon

Dræm miðasala og lítill áhugi á komandi landsleikjum

Dræm miðasala og lítill áhugi á komandi landsleikjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Það eru tíu dagar í að Ísland hefji leik í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir að hafa fallið úr B-deildinni í síðustu útgáfu keppninnar. Eistland, Lúxemborg og Búlgaría eru með okkur í riðli.

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Verkefninu lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild
TENGT EFNI

Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild

Það virðist mjög lítill áhugi á þessu komandi verkefni meðal íslensku þjóðarinnar og það endurspeglast í miðasölunni. Samkvæmt upplýsingum KSÍ hafa aðeins um 1.500 miðar selst á fyrsta leikinn og um 1.200 á leikinn gegn Búlgaríu.

„Miðasalan hefur verið dræm, við þurfum að fá fólk upp á tærnar og fá það til að skilja það að þetta er mjög mikilvægt verkefni. Þetta verður alls ekki auðvelt. Allir þurfa að leggjast á eitt til að við getum komið okkur á stórmót," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.