Fotbolti.net
02.09.26 - 15:28
Snæbjört Pálsdóttir

Byrjunarlið Breiðabliks í Rúmeníu - Bryndís Arna byrjar

Breiðablik með sjö marka forystu

Bryndís Arna Níelsdóttir er í fyrsta sinn í sumar í byrjunarliði Breiðabliks

Bryndís Arna Níelsdóttir er í fyrsta sinn í sumar í byrjunarliði Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik heimsækir Csíkszereda frá Rúmeníu í seinni leik liðanna í 1. umferð Evrópubikarsins. Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og þau má sjá hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: Csikszereda 0 - 0 Breiðablik

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar frá fyrri leik liðanna. Bryndís Arna Níelsdóttir byrjar sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í sumar, þá koma Olga Ingibjörg Einarsdóttir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir einnig inn í byrjunarliðið. Elísa Viðarsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Edith Kristín Kristjánsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel taka sæti á bekknum.

Blikar eru í afar góðri stöðu eftir 8-1 stórsigur í fyrri leiknum í Kópavogi og standa því vel að vígi í baráttunni um sæti í næstu umferð. Leikurinn hefst klukkan 16:00.

Byrjunarlið Csikszereda

  • 90. Bettina Böröcz (m)
  • 9. Anita Antal
  • 14. Aranka Orban
  • 15. Anabelle Nombot
  • 17. Csilla Balasz
  • 25. Pinja Xi Mei Eklund
  • 26. Tereza Bednárová
  • 33. Noemi Vincze
  • 35. Leila Szolomájer
  • 77. Jehona Shala
  • 94. Andrea Herczeg

Byrjunarlið Breiðablik

  • 1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
  • 4. Elín Helena Karlsdóttir
  • 5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
  • 8. Katelyn Duong
  • 10. Bryndís Arna Níelsdóttir
  • 11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
  • 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
  • 16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
  • 17. Karitas Tómasdóttir
  • 18. Kristín Dís Árnadóttir
  • 29. Sunna Rún Sigurðardóttir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.