01.09.26 - 20:32
Kári Snorrason
Sölvi svarar Óskari - „Sjá allir í gegnum þetta“
Auglýsing

„Hann er að reyna komast inn í hausinn hjá okkur en það gengur ekki.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ármann Ingi skoraði eina mark Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ósáttur að hafa ekki fengið víti þarna.

Víkingur og KR gerðu 1-1 jafntefli á Meistaravöllum fyrr í dag. Bæði mörkin komu í uppbótartíma. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leik.
„Fyrri hálfleikurinn var opinn og við nutum góðs af því. Fengum fullt af færum, áttum að fá víti og sennilega tekið af okkur löglegt mark. Dýrkeypt að vera ekki komnir í betri stöðu í fyrri hálfleiknum,“ segir Sölvi og var hann ánægðari með spilamennsku liðsins í síðari hálfleik.
Hrannar Snær Magnússon féll niður í teig KR snemma leiks og þá var Stígur Diljan Þórðarson flaggaður rangstæður eftir að hafa skorað í fyrri hálfleik. Sölvi sagðist vera ósáttur með dómara leiksins.
„Mér finnst dómararnir eiga gera betur. Þetta eru stórar ákvarðanir sem eru teknar frá okkur. Við verðum að setja kröfu á að þeir taki eftir þessu. Vítið er beint fyrir framan hann. Og svo er rangstaðan. Ég veit að þeir gera kröfur á sjálfan sig að gera betur en þetta. Því miður féll þetta ekki með okkur í dag.“

TENGT EFNI
Óskar óskar Víkingi til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn - „Í tveggja liða móti um annað sætið“
„Sjá allir í gegnum þetta“
Í viðtali við Fótbolta.net eftir leik óskaði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, Víkingi til hamingju með að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn. Sölvi var spurður út í ummæli Óskars.
„Hann er búinn að segja að við séum að spila í annarri deild og óska okkur til hamingju með titilinn. Það sjá allir í gegnum hvað hann er að gera. Nei, ég mun ekki hlusta á þetta.“
Sölvi var spurður hvort um væri að ræða sálfræðistríð. „Hjá honum þá. Já örugglega, hann er að reyna komast inn í hausinn hjá okkur en það gengur ekki,“ sagði Sölvi að lokum.