01.09.26 - 18:36
Brynjar Ingi Erluson
Albert Guðmunds til Lazio (Staðfest)

Mynd: Lazio

Mynd: Lazio
Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er kominn til Lazio á láni frá Fiorentina. Lazio getur gert skiptin varanleg á meðan lánsdvölinni stendur.
Albert hafði úr nokkrum tilboðum að velja undir lok félagaskiptagluggans. Bæði Atalanta og Bologna vildu fá hann en landsliðsmaðurinn valdi Lazio.
Hann kemur til félagsins á láni frá Fiorentina út tímabilið með 12 milljóna evra kaupákvæði. Albert gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir samninginn.
Lazio verður þriðja félagið sem Albert leikur með á Ítalíu en hann kom fyrst til landsins árið 2022 þegar hann samdi við Genoa. Þar lék hann í tvö tímabil áður en Fiorentina fékk hann á láni og gerði félagaskiptin síðar varanleg.
Albert er 29 ára og hefur skorað 26 mörk í Seríu A fyrir Genoa og Fiorentina. Nú fær hann tækifæri til að bæta við mörkum undir stjórn goðsagnarinnar Gennaro Gattuso hjá Lazio.

Benvenuto, Albert ???????? pic.twitter.com/r3UhIePgvO
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) September 1, 2026