Fotbolti.net
02.09.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Lífsbaráttu laugardagur í Lengjunni - Þrjú lið í hættu

Leiknismenn geta fellt granna sína

ÍR er í fallhættu fyrir grannaslag gegn Lekni.

ÍR er í fallhættu fyrir grannaslag gegn Lekni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Lokaumferð Lengjudeildarinnar fer fram á laugardaginn og má búast við blóðugri baráttu í fallbaráttunni þar sem þrjú lið eru í fallhættu. Eitt af þeim mun fara niður með Ægi í Þorlákshöfn.

Völsungur er í fallsæti þrátt fyrir öfluga stigasöfnun að undanförnu en liðið heimsækir Gróttu sem hefur gefið rækilega eftir síðustu vikur og hefur að engu að keppa nema stoltinu.

Grindvíkingar eru aftur í fallhættu í lokin en þeir eiga leik gegn föllnum Ægismönnum sem hafa verið að fá hvern skellinn á fætur öðrum síðustu vikur.

ÍR-ingar eiga þá heimaleik gegn grönnum sínum í Leikni sem munu klárlega ekki gefa neitt eftir þó þeir sigli lygnan sjó.

ÍR FÆR LEIKNI Í HEIMSÓKN
- ÍR heldur sæti sínu hvernig sem fer gegn Leikni ef Grindavík og Völsungur vinna ekki bæði.

- ÍR fellur ef liðið tapar gegn Leikni á meðan Grindavík og Völsungur vinna bæði.

- Jafntefli mun að öllum líkindum duga ÍR til að vera öruggt sama hvernig aðrir leikir fara því markatala liðsins er mun betri en hjá Völsungi.

GRINDAVÍK HEIMSÆKIR ÆGI
- Grindavík þarf að vinna leikinn til að vera öruggt með áframhaldandi veru.

- Ef Grindavík vinnur ekki þarf liðið að treysta á hagstæð úrslit úr leik Gróttu og Völsungs.

VÖLSUNGUR HEIMSÆKIR GRÓTTU
- Völsungur þarf að vinna sinn leik, það er algjörlega óraunhæft að jafntefli geti dugað þó það sé tölfræðilegur möguleiki.

- Sigur einn og sér dugir þó ekki Völsungum því þeir þurfa að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum og að Grindavík og ÍR vinni ekki bæði.

Lokaumferðin - laugardagur 5. september
14:00 Ægir-Grindavík (GeoSalmo völlurinn)
14:00 HK-Fylkir (Kórinn)
14:00 Grótta-Völsungur (Vivaldivöllurinn)
14:00 ÍR-Leiknir R. (Þarfaþingsvöllurinn)
14:00 Njarðvík-Afturelding (JBÓ völlurinn)
14:00 Vestri-Þróttur R. (Kerecisvöllurinn)

Mynd: Fótbolti.net

Hvernig raðast umspilið?
Afturelding hefur unnið deildina og tryggt sér sæti í Bestu-deildina. Ljóst er hvaða lið fara í umspilið, enda í fjórum næstu sætum. Aðeins á eftir að koma í ljós hvernig umspilið raðast. Eins og undanfarin ár er leikið í undanúrslitum heima og að heiman og svo er úrslitaleikur á Laugardalsvelli þar sem allt er undir.

Í undanúrslitum mætir liðið í 2. sæti liðinu í 5. sæti. Liðið í 3. sæti leikur gegn liðinu í 4. sæti. Þróttur og Fylkir eru í 2. og 3. sæti og geta ekki mæst innbyrðis í undanúrslitum. HK og Njarðvík eru í 4. og 5. sæti og geta ekki mæst innbyrðis í undanúrslitum.
Völsungur er enn í fallsæti þrátt fyrir bætt gengi.

Völsungur er enn í fallsæti þrátt fyrir bætt gengi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grindvíkingar heimsækja Ægi.

Grindvíkingar heimsækja Ægi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding21+3345
2Þróttur R.21+2340
3Fylkir21+1440
4HK21+1135
5Njarðvík21+835
6Leiknir R.21+228
7Grótta21-527
8Vestri21-1127
9ÍR21-725
10Grindavík21-1024
11Völsungur21-1423
12Ægir21-448
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.