Fotbolti.net
02.09.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Fór í fýluferð til Mónakó

Erik Lira í baráttunni gegn Belgíu

Erik Lira í baráttunni gegn Belgíu

Canon

Mynd: EPA

Mexíkóski landsliðsmaðurinn Erik Lira fer ekki til Mónakó eftir að Folarin Balogun hætti við að ganga í raðir Everton. Þetta kemur fram í L'Equipe.
Everton og Mónakó höfðu náð samkomulagi um kaup enska félagsins á bandaríska framherjanum Folarin Balogun en vandamál kom upp í læknisskoðuninni.

Everton vildi engu að síður ganga frá kaupunum en breytti skilmálum samkomulagsins. Balogun snerist þá hugur og hætti við að ganga til liðs við félagið.

Þetta setti Mónakó í erfiða stöðu því félagið þurfti að losa pláss fyrir hinn mexíkóska Lira. Samkomulag var þegar í höfn við Cruz Azul og Lira hafði sömuleiðis samið um kaup og kjör. Hann var kominn til Mónakó til að ganga frá félagaskiptunum og búinn að fara í læknisskoðun.

Þegar Balogun varð um kyrrt var ljóst að Mónakó gæti ekki skráð Lira og var Mexíkóinn því sendur aftur heim. Hann er samningsbundinn Cruz Azul til ársins 2029 en hefur rætt opinskátt um draum sinn um að spila í Evrópu.

Félagaskiptaglugginn er enn opinn í Portúgal og Tyrklandi en Lira hefur tekið skýrt fram að hann vilji ekki fara til Mið-Austurlanda. Hann hafnaði meðal annars tilboði frá Al Jazira í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.