02.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hágrét eftir að hafa verið seldur frá uppeldisfélaginu

Pablo Garcia fagnar marki sínu gegn Valencia

Mynd: EPA

Spænski leikmaðurinn Pablo Garcia var seldur frá Real Betis til Real Santander í gær, en var bersýnilega leiður yfir ákvörðun félagsins sem átti ekki annarra kosta völ en að selja hann.
Garcia er tvítugur vængmaður sem er fæddur og uppalinn í Sevilla. Hann fór í gegnum akademíu Real Betis og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu í byrjun síðasta árs.
Aðeins vika er síðan hann skoraði sigurmark Betis í 1-0 sigri gegn Valencia í La Liga. Í gær var hann hins vegar seldur til nýliða Racing Santander fyrir rúmlega fimm milljónir punda en Betis fær jafnframt 50 prósent af næstu sölu.
Spænska félagið hefði getað fengið töluvert meiri pening fyrir Garcia, en ensk úrvalsdeildarfélög höfðu áhuga en ákváðu að gera ekki tilboð í hann.
Betis þurfti að selja Garcia til að uppfylla fjárhagsreglur deildarinnar. Leikmaðurinn gat lítið gert við ákvörðun félagsins og samþykkti að fara til að hjálpa uppeldisfélagi sínu.
Þegar félagaskiptin voru frágengin sást Garcia yfirgefa höfuðstöðvar Betis hágrátandi og veifa til stuðningsmanna. Myndband af því má sjá hér fyrir neðan.

???????????????????? ???????????????????????? (????????) was in tears over the transfer from Real Betis to Racing.
— Rising Stars XI (@RisingStarXI) September 2, 2026
The Real Betis youth player had to move to Racing Santander in order to help the club comply with Financial Fair Play regulations.
REAL LOVE FOR THE CLUB ???????????? pic.twitter.com/Ehbdq7Tz06