Fotbolti.net
02.09.26 - 14:47
Elvar Geir Magnússon

20 dýrustu leikmenn sumargluggans - Skipti um lið og nafn

Enzo Fernandez.

Enzo Fernandez.

Canon

Mynd: Man City

Glugganum var lokað í gær og hefur BBC tekið saman hvaða leikmenn kostuðu mest í sumarglugganum. Miðað er út frá því kaupverði sem miðillinn hefur greint frá í sínum fréttum.
Hvaða félög áttu besta gluggann og hver áttu þann versta?
TENGT EFNI

Hvaða félög áttu besta gluggann og hver áttu þann versta?

Mynd: Man City

1. Enzo Fernandez - Chelsea til Manchester City, 125 milljónir punda
Dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Mynd: Chelsea

2. Morgan Rogers - Aston Villa til Chelsea, 177 m
Gerði sex ára samning á Brúnni.

Mynd: EPA

3. Elliot Anderson - Nottingham Forest til Manchester City, 116 m
Var í smá tíma dýrasti breski leikmaður sögunnar áður en Rogers toppaði hann.

Mynd: EPA

4. Yan Diomande - RB Leipzig til Real Madrid, 115,7 m
Real Madrid vann samkeppni við Liverpool og Paris St-Germain.

Mynd: Liverpool

5. Bradley Barcola - Paris St-Germain til Liverpool, 106 m
Vann allt sem hægt var að vinna í París.

Mynd: EPA

6. Sandro Tonali - Newcastle til Tottenham, 92,5 m
Roberto De Zerbi sannfærði landa sinn.

Mynd: Tottenham

7. Mateus Fernandes - West Ham til Tottenham, 85 m
Var dýrasti leikmaður í sögu Tottenham þar til Tonali var svo keyptur.

Mynd: Manchester City

8. Ayyoub Bouaddi - Lille til Manchester City, 81,4 m
Miklar væntingar eru gerðar til þessa 18 ára marokkóska miðjumanns.

Mynd: Arsenal

9-10. Bruno Guimaraes - Newcastle til Arsenal, 75 m
Vildi nýja áskorun í herbúðum Englandsmeistarana.

Mynd: Tottenham

9-10. Savio (Savinho) - Manchester City til Tottenham, 75 m
Skipti um lið og breytti um nafn.

Mynd: Manchester United

11. Carlos Baleba - Brighton til Manchester United, 70 m
Sóttur til að styrkja miðsvæðið á Old Trafford.

Mynd: Barcelona

12. Anthony Gordon - Newcastle til Barcelona, 69,3 m
Annasamt ár hjá Gordon, seldur til Katalóníu og keppti með Englandi á HM.

Mynd: EPA

13. Rodri - Manchester City til Barcelona, 65 m
Fyrirliði heimsmeistara Spánar hefur yfirgefið England.

Mynd: EPA

14. Goncalo Ramos - Paris St-Germain til AC Milan, 60,2 m
Fyrstu kaup Rúben Amorim til Mílanó.

Mynd: Man City

15. Iliman Ndiaye - Everton til Manchester City, 60 m
Stuðningsmenn Everton hafa þurft að horfa á eftir einum af sínum uppáhalds leikmönnum.

Mynd: Liverpool

16-17. Jeremy Jacquet - Rennes til Liverpool, 55 m
Þessi 21 árs varnarmaður er kominn í hendurnar á Andoni Iraola.

Mynd: EPA

16-17. Crysencio Summerville - West Ham til Al-Hilal, 55 m
Þrátt fyrir áhuga frá stórum liðum í Evrópu ákvað hann að halda á Arabíuskagann.

Mynd: Man City

18-20. Tijjani Reijnders - Manchester City til Al-Qadsiah, 52 m
Hollenski miðjumaðurinn var eitt ár í enska boltanum.

Mynd: EPA

18-20. Maxence Lacroix - Crystal Palace til Chelsea, 52 m
Spilaði þrjá leiki fyrir Frakkland á HM í sumar.

Mynd: Tottenham Hotspur

18-20. Jan Paul van Hecke - Brighton til Tottenham, 52 m
Hann og De Zerbi eru sameinaðir á ný.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.