02.09.26 - 09:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Michael í starf hjá Bröndby

Með Michael á myndinni er Bjørn Holm sem stýrir akademíunni hjá Bröndby.

Mynd: Bröndby

Michael John Kingdon hefur verið ráðinn til danska stórliðsins Bröndby og mun starfa þar næstu tvö árin.
Michael, sem er 28 ára, verður yfirgreinandi hjá eldri liðum í akademíu félagsins (U17-U19) og mun starfa náið með greinendum aðalliðsins.

Michael kemur til Bröndby frá grönnunum í Lyngby hvar hann starfaði í eitt og hálft ár við góðan orðstýr. Þar var hann greinandi og stýrði einnig U19 liði félagsins.
Áður hafði hann starfað hjá Fylki og leikgreindi fyrir yngri landslið Íslands.
HK-ingurinn, markvörðurinn Marten Leon Jóhannsson, er leikmaður U17 hjá Bröndby, Thomas Ari Arnarsson er leikmaður U19 og Arnar Bjarki Gunnleifsson kemur til félagsins frá Breiðabliki um áramótin.