Fotbolti.net
02.09.26 - 13:01
Elvar Geir Magnússon

Eigendur Everton finna fyrir reiði stuðningsmanna

David Moyes, stjóri Everton.

David Moyes, stjóri Everton.

Canon

Mynd: EPA

Mikil reiði stuðningsmanna Everton beinist að eigendunum, bandaríska viðskiptamanninum Dan Friedkin og hans fólki, og að framkvæmdastjóranum Angus Kinnear.

Mikil ólga er eftir hrikalegan endi á félagaskiptaglugganum. Reiði myndaðist þegar það átti að selja hinn efnilega Harrison Armstrong til Nottingham Forest og hætt var við það vegna viðbragða stuðningsmanna.

Bandaríski sóknarmaðurinn Folarin Balogun hætti svo skyndilega við að fara til Everton í bláok gluggans. Eitthvað kom upp í læknisskoðun en þegar það var frágengið var Balogun búinn að skipta um skoðun. Everton reyndi þá að fá Joshua Zirkzee og gerði tilboð í Tammy Abraham en hvorugt gekk upp.

Þetta gerðist þetta allt nokkrum klukkustundum eftir að Everton hafði samþykkt 15,5 milljóna punda félagaskipti framherjans Beto til Fiorentina og selt Iliman Ndiaye til Manchester City fyrir 65 milljónir punda.
Hvaða félög áttu besta gluggann og hver áttu þann versta?
TENGT EFNI

Hvaða félög áttu besta gluggann og hver áttu þann versta?

„Everton gæti bent á að Balogun hafi tekið persónulega ákvörðun sem þeir gátu ekki breytt, en stærri spurningin er hvers vegna þeir biðu til síðasta dags gluggans til að taka á langtímavandamálum?" segir Phil McNulty, helsti fótboltablaðamaður BBC.

„Everton kann að hafa endurnýjað lánssamninginn við Jack Grealish og loksins leyst vandamál með hægri bakvarðarstöðuna með því að kaupa Ashley Maitland-Niles frá Lyon fyrir þrjár milljónir punda, en niðurstaðan varðandi félagaskiptagluggann er þó mikil skömm fyrir eigendurna og Kinnear."

„Í raun og veru hafa þeir komið út úr glugganum mun veikari en þegar hann opnaði. Everton hefur enn ekki gefið út neina opinbera yfirlýsingu um atburðina sem hafa leitt til svo harðrar gagnrýni, uppreisnar aðdáenda og taps á trúverðugleika eigendanna."
Dan Friedkin í stúkunni.

Dan Friedkin í stúkunni.

Canon

Mynd: EPA

Eigendur Everton finna fyrir reiði stuðningsmanna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.