Fotbolti.net
02.09.26 - 15:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Aron er hæsta stigs maður

Aron Sigurðarson

Aron Sigurðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson fór mikinn í viðtölum eftir leik KR og Víkings í gær. Fyrirliði KR sagði að KR væri búið að taka fram úr Víkingi sem besta lið landsins og að baráttan um titilinn væri galopin. Sex umferðir eru eftir og átta stig munar á KR og Víkingi.

„Mér finnst við hafa tekið fram úr þeim. Erum besta liðið á landinu í dag. Við hugsum um okkur. Það tók okkur tvö ár að verða besta lið landsins."

„Ef þeim tekst að haltra í átt að þessum titli þá klappa ég fyrir þeim. En við erum að koma,"
sagði Aron við Fótbolta.nert í gær.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Víkingur R.
Þjálfari KR, Óskar Hrafn Þorvaldsson, var spurður út í ummæli fyrirliðans. Óskar sagði að munurinn á liðunum væri stöðugleikinn sem Víkingur hefði sýnt í lengri tíma.

„Aron er hæsta stigs maður og ég ætla ekki að draga hann niður. Á okkar besta degi erum við jafngóðir ef ekki betri en þeir, en þeir hafa þann eiginleika að þeir sýna meiri stöðugleika yfir lengri tíma. Við erum ekki komnir þangað þar sem þeir eru," sagði Óskar við Fótbolta.net eftir leikinn.

Ummælin ekki svaraverð
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í ummæli Arons í viðtali á Sýn Sport eftir leikinn.

„Ég kýs að svara því ekki. Það er ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja síðustu daga. Kýs að svara því ekki. Ekki svaravert," sagði Sölvi og vísaði með því einnig í ummæli Arons í síðustu viku þar sem hann sagði að tímabilið hjá Víkingi væri undir í Evrópuleiknum gegn Borac.

KR og Víkingur eiga eftir að mætast aftur í efri hluta deildarinnar en deildinni verðu skipt í efri og neðri hluta eftir næstu umferð.
Óskar Hrafn

Óskar Hrafn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir

Sölvi Geir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron segir KR hafa tekið fram úr Víkingi - „Þeir eru bensínlausir og haltrandi“

Óskar óskar Víkingi til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn - „Í tveggja liða móti um annað sætið“

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.