01.09.26 - 17:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi mætti í áritaðri Rooney treyju

Gylfi gengur inn á völlinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi gengur inn á völlinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna er í gangi stórleikur KR og Víkings í Bestu deild karla. Leikurinn gæti reynst gríðarlega mikilvægur í titilbaráttunni þar sem KR getur sett pressu á topplið Víkings með sigri, á meðan Víkingar geta komið sér í afar þægilega stöðu með góðum úrslitum.
Næsta föstudag verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning.

KSÍ og ÍTF hafa staðið þétt við bakið á börnum með krabbamein, við undirbúning dagsins. Í öllum leikjum í Bestu deildum karla og kvenna dagana 28. ágúst - 1. september ganga leikmenn, dómarar og fleiri sem tengjast leiknum inn á völlinn í sinni uppáhalds treyju til að vekja athygli á verkefninu.
Leikmenn KR og Víkings gengu inn á í sínum uppáhalds treyjum fyrir leikinn í dag en Gylfi var í áritaðri Wayne Rooney treyju frá tíma sínum í Everton.
Gylfi og Rooney spiluðu saman í Everton tímabilið 2017/18.
Rooney er einn besti fótboltamaður í sögu enska fótboltans en hann lék lengst af með Manchester United.
Meðfylgjandi í þessari frétt eru myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók en hann er í Vesturbænum.