Fotbolti.net
02.11.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Stórleikur í Róm og nágrannaslagur í Tórínó

Edin Dzeko, 33, er kominn með fimm mörk og eina stoðsendingu í tíu leikjum.

Edin Dzeko, 33, er kominn með fimm mörk og eina stoðsendingu í tíu leikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Það fara þrír leikir fram í ítalska boltanum í dag og koma fjögur af toppliðunum sex við sögu.
AS Roma tekur á móti Napoli í fyrsta leik dagsins sem verður sýndur beint rétt eins og hinir leikir dagsins.

Arkadiusz Milik hefur verið í stuði í liði Napoli og er kominn með fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Heimamenn í Róm eru án margra lykilmanna en tyrkneska undrið Cengiz Ünder er búinn að ná sér af meiðslum og gæti leikið lykilhlutverk í dag.

Inter hefur farið vel af stað undir stjórn Antonio Conte og er í öðru sæti, einu stigi eftir toppliði Juventus. Inter heimsækir Boogna í dag og er Andri Fannar Baldursson ekki í hóp, en hann sat á bekknum í 2-1 sigri gegn Sampdoria um síðustu helgi.

Í kvöld fer svo slagurinn um Tórínó fram þar sem Torino tekur á móti margföldum Ítalíumeisturum Juventus.

Leikir dagsins:
14:00 Roma - Napoli (Stöð 2 Sport 3)
17:00 Bologna - Inter (Stöð 2 Sport 4)
19:45 Torino - Juventus (Stöð 2 Sport 2)

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio9+1525
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Milan10+921
5Como9+920
6Frosinone9+817
7Napoli9+614
8Juventus9+114
9Bologna10+114
10Torino9013
11Cagliari9-513
12Atalanta9-111
13Genoa9-510
14Lecce9-99
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.