31.10.26 - 16:16
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Markvörðurinn hetjan í Bologna

Skorupski varði vítaspyrnu undir lokin

Mynd: EPA

Skorupski varði vítaspyrnu undir lokin

Mynd: EPA
Bologna 2 - 1 Monza
0-1 Gustavo Varela ('6 , víti)
1-1 Tommaso Pobega ('33 )
2-1 Federico Bernardeschi ('59 , víti)
2-1 Patrick Cutrone ('81 , Misnotað víti)

Bologna fagnaði 2-1 sigri á Monza í tíundu umferð Seríu A á Ítalíu í dag.
Þrjár vítaspyrnur voru dæmdar í leiknum og sú fyrsta kom eftir tæplega sex mínútna leik.
Belgíski varnarmaðurinn Arthur Theate hefur átt erfitt uppdráttar í síðustu leikjum Bologna. Hann gerði slæm mistök sem leiddu til marks í síðasta leik og í dag braut hann af sér innan vítateigs þegar hann felldi Dany Mota.
Gustavo Varela skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni og kom Monza yfir, en Tommaso Pobega jafnaði metin fyrir Bologna á 33. mínútu með stórglæsilegu viðstöðulausu skoti á lofti eftir hornspyrnu.
Theate náði hins vegar að bæta fyrir mistök sín þegar hann fiskaði vítaspyrnu á hinum enda vallarins á 58. mínútu. Federico Bernardeschi steig á punktinn og skoraði af öryggi.
Monza fékk svo dauðafæri til að jafna undir lokin þegar Nadir Zortea handlék boltann innan eigin vítateigs og þriðja vítaspyrna leiksins var dæmd. Patrick Cutrone steig á punktinn, en Lukasz Skorupski sá við honum og varði spyrnuna.
Stórkostleg varsla hjá Skorupski sem reyndist afar dýrmæt og tryggði Bologna stigin þrjú. Liðið er í níunda sæti með 14 stig á meðan Monza situr aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti með sjö stig.