31.10.26 - 16:58
Brynjar Ingi Erluson
England: Brighton náði fram hefndum á Man City

Brighton vann Man City á Etihad

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Evanilson skoraði í sigri Bournemouth

Mynd: EPA

Brighton vann Man City á Etihad

Mynd: EPA
Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, hafði heitið því að lið hans myndi hefna sín á Manchester City og stóð við stóru orðin þegar Brighton lagði lærisveina Enzo Maresca að velli, 1-0, á Etihad í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Brighton féll úr leik í enska deildabikarnum eftir tap í vítakeppni gegn Manchester City á Etihad í miðri viku.
Hürzeler sagði úrslitin hafa verið ósanngjörn og taldi Brighton hafa verið mun betri aðilann í leiknum. Hann var því í hefndarhug þegar hann mætti aftur með sína menn á Etihad í dag.
Það tók Brighton aðeins ellefu mínútur að komast yfir. Diego Gomez sendi þá fyrirgjöf frá hægri inn í teiginn á Maxim De Cuyper, sem náði laglegri snertingu og kom boltanum á Yasin Ayari sem skoraði af öryggi.
City átti aðeins eitt skot á markið í fyrri hálfleik og var liðið auk þess afar brothætt varnarlega.
Brighton fékk fleiri tækifæri til að bæta við forystuna, en tókst ekki að nýta þau. City jók ákefðina þegar leið á leikinn og reyndi hvað það gat að jafna metin, en náði aldrei að brjóta vörn Brighton á bak aftur.
Brighton náði því fram hefndum og er nú komið upp í þriðja sæti með 19 stig, aðeins tveimur stigum á eftir Man City sem trónir á toppnum.
Þriðji sigur Lampards og félaga
Frank Lampard og lærisveinar hans í Coventry unnu sinn þriðja leik á tímabilinu þegar þeir lögðu Sunderland að velli, 3-1.
Tatsuhiro Sakamoto nýtti sér slaka hreinsun í vörn Sunderland á 17. mínútu og skoraði með laglegu skoti rétt fyrir utan vítateiginn. Taiwo Awoniyi bætti síðan við öðru marki þegar hann vann boltann fyrir utan teiginn, keyrði inn í hann og renndi boltanum auðveldlega í netið.
Jack Rudoni kom Coventry í 3-0 á 52. mínútu áður en Enzo Le Fee minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 67. mínútu. Það er farið að hitna verulega undir Regis Le Bris eftir enn ein vonbrigðin.
Vont versnaði undir lokin þegar Omar Alderete sá tvö gul á stuttum tíma og kláruðu Sunderland-menn með tíu menn gegn ellefu.
Coventry er í 15. sæti með níu stig, en Sunderland situr á botninum með aðeins fimm stig.
Brentford vann 2-0 sigur á Nottingham Forest. Nikola Milenkovic varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir hálftíma leik og Igor Thiago innsiglaði síðan sigurinn þegar stundarfjórðungur var eftir. Brentford er í sjötta sæti með 14 stig, en Forest situr í næstneðsta sæti með sex stig.
Hull og Ipswich gerðu 2-2 jafntefli í nýliðaslag. Florentino kom Ipswich yfir á 22. mínútu, en miðjumaðurinn Tim Iroegbunam jafnaði metin áður en Oli McBurnie kom Ipswich aftur í forystu.
Julio Enciso jafnaði hins vegar á 74. mínútu og þar við sat. Hull er í níunda sæti með ellefu stig, en Ipswich er með jafnmörg stig.
Evanilson og Amine Adli skoruðu mörk Bournemouth í 2-0 sigri liðsins á Leeds.
Dominic Calvert-Lewin kom boltanum í netið eftir ellefu mínútur, en markið var dæmt af vegna handar í aðdragandanum. Tuttugu mínútum síðar skoraði Evanilson hins vegar fyrra mark Bournemouth eftir góðan undirbúning frá Justin Kluivert.
Undir lokin gulltryggði Amine Adli sigurinn eftir laglega stoðsendingu frá Eli Junior Kroupi.
Bournemouth er í sjöunda sæti með tólf stig, en Leeds er í áttunda sæti með ellefu stig.
Bournemouth 2 - 0 Leeds
1-0 Evanilson ('31 )
2-0 Amine Adli ('90 )
Brentford 2 - 0 Nott. Forest
1-0 Nikola Milenkovic ('30 , sjálfsmark)
2-0 Igor Thiago ('76 )
Coventry 3 - 1 Sunderland
1-0 Tatsuhiro Sakamoto ('17 )
2-0 Taiwo Awoniyi ('37 )
3-0 Jack Rudoni ('52 )
3-1 Enzo Le Fee ('67 , víti)
Rautt spjald: Omar Alderete ('90, Sunderland)
Hull City 2 - 2 Ipswich Town
0-1 Florentino ('22 )
1-1 Tim Iroegbunam ('58 )
2-1 Oli McBurnie ('68 )
2-2 Julio Enciso ('74 )
Manchester City 0 - 1 Brighton
0-1 Yasin Ayari ('11 )

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | -1 | 12 |
| 9 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 12 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 16 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -11 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |