31.10.26 - 16:06
Brynjar Ingi Erluson
Sigurþurrðin hjá Man Utd sú lengsta í 38 ár

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester United er að ganga í gegnum einn erfiðasta kaflann í sögu félagsins, en liðið hefur nú leikið níu leiki í röð án sigurs.
Manchester United tapaði 2-0 fyrir Chelsea á Stamford Bridge í dag og heldur sigurþurrð liðsins því áfram.
Þetta var sjöundi deildarleikurinn í röð sem United tekst ekki að vinna og sá níundi í röð í öllum keppnum.
Leita þarf allt aftur til ársins 1988 til að finna jafn slæma hrinu hjá United, en þá fór liðið í gegnum níu leiki án sigurs (tíu ef Aldarafmælisbikarinn er tekinn með í myndina, en hann var aðeins spilaður það tímabilið til að fagna 100 ára afmæli deildarinnar).
Það tímabil hafnaði United í ellefta sæti deildarinnar og féll úr leik í öllum bikarkeppnum.
Talið er að Michael Carrick, stjóri United, fái meiri tíma til að snúa genginu við, en næsta verkefni liðsins er gegn Roma í Meistaradeildinni.

It has been 62 days since Manchester United last won a PL game — their worst run in 38 years.
— utdreport (@utdreport) October 31, 2026
Nine consecutive games without a win. https://t.co/nWjh5M1LL4