Fotbolti.net
03.02.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson

Gerrard í þriggja leikja bann. (staðfest)

Steven Gerrard, miðvallarleikmaður Liverpool fór fyrir aganefnd enska knattspyrnusambandsins í dag og fékk dóm.

Miðjumaðurinn sterki var dæmdur í þriggja leikja bann í dag fyrir títtnefnda tæklingu á Gary Naysmith hjá Everton. Hann fékk ekki fjársekt en þurfti samt sem áður að greiða allan málskostnað. Bannið tók gildi þegar í stað í dag því stjórn Liverpool tók þá ákvörðun að áfrýja ekki málinu.



Þessir þrír leikir sem Gerrard mun missa af eru bikarleikurinn gegn Crystal Palace nk. miðvikudag ásamt tveimur næstu bikarleikjum sem eru gegn Birmingham og Middlesborough. Auk þess mun hann missa af vináttulandsleik Ástralíu og Englands.



Gerard Houllier var ekki ánægður með niðurstöðuna:


Ef ég hefði haft minnsta grun um sekt hans [Gerrard] þá hefði ég aldrei komið hingað til að verja hann. sagði Houllier í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.