Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. apríl 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Choupo-Moting: Lewandowski er besti framherji heims
Eric Maxim Choupo-Moting gæti fengið tækifæri í framlínunni
Eric Maxim Choupo-Moting gæti fengið tækifæri í framlínunni
Mynd: Getty
Eric Maxim Choupo-Moting vonast til þess að Robert Lewandowski, liðsfélagi hans hjá Bayern München, verði klár sem allra fyrst en hann er frá næstu vikurnar.

Lewandowski mun missa af 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Paris Saint-Germain og þá missir hann af mikilvægum leikjum í toppbaráttunni í þýsku deildinni.

Hann var valinn besti leikmaður heims af FIFA fyrir síðasta ár en Choupo-Moting vonast til þess að nái sér sem fyrst.

„Lewy er besti framherji heims í dag. Það er leiðinilegt fyrir félagið að hann sé meiddur. Við vonum að hann verði klár sem allra fyrst, því við þurfum á honum að halda," sagði Choupo-Moting.

„Við erum með marga kosti en ég mun gefa allt mitt á æfingasvæðinu og vonast til að fá kallið. Það skiptir ekki öllu hvort ég spili eða ekki. Aðalmálið er að við náum árangri sem lið," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner