Fotbolti.net
25.06.26 - 09:23
Kári Snorrason

Everton reynir við Bowen - Arsenal og City vilja Hjulmand

Bowen féll með West Ham.

Bowen féll með West Ham.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Everton ber víurnar í Jarrod Bowen, Arsenal heldur áfram að reyna við Morgan Rogers og Manchester United gæti sótt markvörð Skota á HM. Þetta og margt fleira í þéttum slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Angus Gunn (30), markvörður skoska landsliðsins, gæti verið á leið til Manchester United eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Nottingham Forest. (The Sun)

Arsenal ætlar að halda áfram að reyna að fá Morgan Rogers (23), miðjumann Aston Villa og enska landsliðsins, þrátt fyrir að Villa hafi engan áhuga á að selja hann. (The Sun)

Everton hefur stigið fyrstu skrefin í átt að því að fá Jarrod Bowen (29), fyrirliða West Ham og framherja enska landsliðsins. (Football Insider)

Hull City hefur sett markvörðinn Radek Vitek (22), sem er á mála hjá Manchester United, á óskalista sinn eftir að tékkneski unglingalandsliðsmaðurinn stóð sig vel á láni hjá Bristol City á síðasta tímabili. (Daily Mail)

Sheffield United er í langt komnum viðræðum við Manchester City um kaup á Kalvin Phillips (30) sem lék með félaginu á láni á síðasta tímabili. (Football Insider)

Arsenal hefur lækkað verðmiðann á brasilíska framherjanum Gabriel Jesus (29) niður í 20–25 milljónir punda. Everton hefur lengi haft áhuga á leikmanninum. (CaughtOffside)

Bruno Fernandes (31), virðist ætla að vera áfram á Old Trafford eftir að hafa látið liðsfélaga vita að hann hyggðist ekki fara þrátt fyrir áhuga frá Sádi-Arabíu síðasta sumar. (Talksport)

Arsenal og Manchester City gætu skoðað möguleikann á að fá Morten Hjulmand (26), fyrirliða og miðjumann Sporting, sem skoraði fyrir Danmörku gegn Englandi á EM 2024. (A Bola)
Morten Hjulmand.

Morten Hjulmand.

Canon

Mynd: EPA

Angus Gunn fékk á sig þrjú gegn Brasilíu í gærkvöld.

Angus Gunn fékk á sig þrjú gegn Brasilíu í gærkvöld.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.