Fotbolti.net
25.06.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chelsea hefur mikinn áhuga á miðverði Crystal Palace

Chelsea hefur mikinn áhuga á miðverði Crystal Palace
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur mikinn áhuga á Maxence Lacroix, varnarmanni Crystal Palace.

BBC greinir frá því að Crystal Palace sé undirbúið undir það að fá tilboð frá Chelsea í leikmanninn sem er í franska landsliðshópnum á HM.
Palace vill alls ekki missa hann og er tilbúið að bjóða honum nýjan samning en óvíst hvort hann sé tilbúinn að fara í viðræður við félagið.

Marc Cucurella fór til Real Madrid frá Chelsea fyrr í þessum mánuði og þá er Trevoh Chalobah sagður vera á óskalista ítalska félagsins Como.

Chelsea hefur einnig áhuga á hinum 21 árs gamla Jacobo Ramon, miðverði Como.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.