Fotbolti.net
25.06.26 - 09:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Veisla framundan á Kópavogsvelli - „Vonandi gerist eitthvað í glugganum hjá okkur"

Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari Breiðabliks.

Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þeir eru að koma í rólegheitum aftur, eru day-by-day (staðan metin frá degi til dags) hjá okkur," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, um þá Davíð Ingvarsson og Kristófer Inga Kristinsson sem voru ekki með Blikum gegn KA um helgina.

Í kvöld tekur Breiðablik á móti Víkingi í 12. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Kópavogsvelli.
Varð okkar eigin Klopp og Guardiola slagur
TENGT EFNI

Varð okkar eigin Klopp og Guardiola slagur

Anton Logi ekki með - Kristófer og Davíð ólíklegir
En er Óli bjartsýnn á að þeir geti tekið þátt í leiknum á morgun?

„Ég myndi ekki segja bjartsýnn bjartsýnn, en það er kannski einhver möguleiki."

„Það er töluvert af leikmönnum sem hafa verið frá, eru enn og eru að skríða til baka margir hverjir. Menn eru að stíga fínustu skref í að nálgast endurkomu sem er jákvætt. Anton Logi verður aðeins frá og það er aðeins í Kidda Steindórs og Valgeir Valgeirs. Það er styttra í aðra."


Allir þjálfarar vilja hafa sitt sterkasta lið til taks
Það er stórleikur í kvöld, er svekkjandi að vera ekki með alla heila?

„Ég held að allir þjálfarar væru til í að vera alltaf með sitt sterkasta lið til taks. Það er partur af þessum leik að það koma meiðsli, en þau hafa kannski hrannast upp núna á stuttum tíma, ekki þeim besta. Við erum samt brattir, erum með breiðan og góðan hóp. Við gerðum vel á móti KA og ætlum að halda áfram. Það þýðir ekkert að pæla of mikið í því, við mætum klárir til leiks."

Gefur ekkert upp
Ívar Örn Árnason tekur út leikbann í leiknum. Ívar var hluti af þéttri varnarlínu með Ásgeiri Helga Orrasyni og Viktori Erni Margeirssyni gegn Víkingi í fyrstu umferðinni. Verður mikil breyting á upplegginu frá fyrsta leik í deildinni?

„Ég ætla að gefa mér það leyfi að vera ekkert að ræða það of mikið svona deginum fyrir leik. Við erum auðvitað búnir að teikna upp leikplan sem við viljum framkvæma á morgun. Það verður að koma í ljós hvernig það verður."

Unnið hvern einasta leik frá því Blikar mættu þeim síðast
Er gaman að máta sig við besta liðið í deildinni í dag?

„Klárlega. Þetta er mikil áskorun, þeir eru búnir að vinna hvern einasta leik síðan við mættum þeim í 1. umferð, verið alveg hrikalega solid. Þeir hafa fengið á sig fá mörk, skorað mikið af mörkum, eru í góðum takti. Þetta er ærið verkefnið en það er tilhlökkun og það verður gaman að fá þá á Kópavogsvöll í tvo leiki í röð. Það er bara veisla."

Eins og Óli segir tekur Breiðablik svo aftur á móti Víkingi á sunnudag. Þá mætast liðin í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Planið að stækka hópinn
Það styttist í að félagaskiptaglugginn opni, þó eru enn þrjár vikur í það. Ertu að búast við breytingum á hópnum?

„Við erum með leikmenn sem við erum að skoða og vinna í. Vonandi gerist eitthvað í glugganum hjá okkur, við viljum bæta í og stækka hópinn. Það er planið eins og er, svo verður að koma í ljós hvort það næst."

Horfa í týpur frekar en stöður
Viltu segja hvar á vellinum þú vilt breikka hópinn?

„Ég held það sé best að við höldum því innanbúðar enn sem komið er. Við erum ekkert endilega að líta í stöður, frekar týpur af karakterum og týpur af leikmönnum sem við erum að skoða."

Samtal við Jason Daða eða Árna?
Varðandi leikmenn sem þið eruð að skoða, er eitthvað samtal í gangi varðandi Árna Vilhjálmsson eða Jason Daða?

„No komment," sagði Óli að lokum.
Kristófer Ingi er markahæsti leikmaður Breiðabliks en hann er að glíma við meiðsli.

Kristófer Ingi er markahæsti leikmaður Breiðabliks en hann er að glíma við meiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð spilaði ekki heldur á móti KA.

Davíð spilaði ekki heldur á móti KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snýr Árni aftur í Breiðablik?

Snýr Árni aftur í Breiðablik?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Logi verður ekki með á morgun.

Anton Logi verður ekki með á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við erum samt brattir, erum með breiðan og góðan hóp'

'Við erum samt brattir, erum með breiðan og góðan hóp'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.