Fotbolti.net
25.06.26 - 09:00
Runólfur Trausti Þórhallsson

Aðeins tvö ár síðan stuðningsmenn vildu hann burt

Suzuki í leik gegn Íslandi.

Suzuki í leik gegn Íslandi.

Canon

Mynd: Matthías Már

Uhlsport
Zion Suzuki er einn af mest spennandi markvörðunum á HM sem nú fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Suzuki stendur vaktina í marki Japans en hefði getað valið að spila fyrir tvær aðrar þjóðir sem einnig eru með á mótinu.
Hinn 23 ára gamli Suzuki fæddist í New Jersey í Bandaríkjunum þann 21. ágúst árið 2002. Hann ólst hins vegar upp í Japan þar sem móðir hans er japönsk. Faðir hans er aftur á móti frá Gana og því var hann gjaldgengur í landslið allra þriggja áður en hann valdi Japan.

Hann er í dag á grænni grein, spilar með Parma í efstu deild Ítalíu en aðeins eru tvö ár síðan síðan stuðningsmenn Japans vildu losna við hann. Í Asíubikarnum árið 2024 tapaði Japan 2-1 fyrir Írak og vildu margir stuðningsmenn Japans meina að Suzuki hefði tapað leiknum nánast upp á sitt einsdæmi.

Í kjölfarið rigndi rasískum skilaboðum yfir markvörðinn á samfélagsmiðlum. Hajime Moriyasu, þjálfari Japan, stóð með sínum manni og lét þessa svokölluðu stuðningsmenn heyra það.



Tveimur árum síðar er Suzuki óumdeildur aðalmarkvörður Japans og hefur spilað vel í 2-2 jafntefli gegn Hollandi og ótrúlegum 4-0 sigri á Túnis. Það eru svo allar líkur á því að hann standi milli stanganna í leik Japans og Svíþjóðar sem hefst klukkan 23.00 í kvöld.

Hinn 1.90 metra hái Suzuki er sagður hafa neitað Manchester United árið 2023 eftir góða frammistöðu með Rauðu demöntunum í Urawa. Þess í stað fór hann til Sint-Truidense í Belgíu á láni. Belgíska félagið keypti hann svo í janúar árið 2024 en var búið að selja hann til Parma á Ítalíu aðeins hálfu ári seinna enda ljóst að markvörðurinn átti bjartari framtíð fyrir sér en Sint-Truidense gat boðið upp á.

Er áttfalt dýrari en þegar hann var fyrst orðaður við Man Utd
TENGT EFNI

Er áttfalt dýrari en þegar hann var fyrst orðaður við Man Utd



Að HM loknu stefnir svo í að Suzuki skipti um lið á nýjan leik. Ekki er þó vitað hver verðmiðinn verður. Hann er sem stendur orðaður við Aston Villa og Leeds United í ensku úrvalsdeildinni sem og Þýskalandsmeistara Bayern München.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.