Fotbolti.net
03.04.21 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Dortmund vill fá markvörð Bayern

Alexander Nübel

Alexander Nübel

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Borussia Dortmund mun reyna að fá Alexander Nübel á láni frá Bayern München í sumar en Eurosport greinir frá þessu.
Nübel er 24 ára gamall en hann hefur aðeins spilað þrjá leiki með aðalliðinu á tímabilinu.

Hann hefur spilað tvo Meistaradeildarleiki og einn bikarleik en ekki fengið tækifæri í deildinni.

Samkvæmt Eurosport vill Nübel fá að spila meira og hefur Borussia Dortmund mikinn áhuga á að fá hann á láni í sumar.

Dortmund vill annan markvörð í rammann en Roman Bürki hefur ekki verið sannfærandi á þessari leiktíð. Hann hefur spilað sextán deildarleiki og aðeins haldið hreinu fjórum sinnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.