Argentínumaðurinn Enzo Fernandez verður í agabanni hjá Chelsea í næstu tveimur leikjum en Liam Rosenior, stjóri félagsins, greindi frá þessum tíðindum á fréttamannafundi í dag.
Agabannið kemur í kjölfar ummæla sem Enzo lét falla í viðtali í landsleikjaverkefninu.
Þar daðraði hann við Real Madrid og sagðist meira en opinn fyrir því að búa í Madríd. Einnig nefndi hann Toni Kroos og Luka Modric sem átrúnaðargoð sín, sem voru báðir á mála hjá Real Madrid um árabil.
„Ég ræddi við Enzo fyrir klukkutíma síðan. Ég og félagið höfum því ákveðið að hann verði ekki með í leiknum á morgun né gegn Manchester City næsta sunnudag.“
„Það eru mikil vonbrigði að Enzo skuli tala með þessum hætti. Ég hef ekkert slæmt um hann að segja, en hann fór yfir strikið þegar það kemur að okkar menningu og hvað við viljum byggja.“
„Ég ber ómælda virðingu fyrir Enzo sem karakter, persónu og leikmanni og öllu því sem hann hefur afrekað, og hvaða leikmann hann hefur að geyma. Hann er pirraður því hann vill að okkur gangi vel.“
„Varðandi ákvörðunina þá snýst þetta ekki bara um mig, stjórnina, eigendurna og leikmennina. Við erum allir í línu og var þetta því sameiginleg ákvörðun. Við höfum ekki lokað dyrunum á Enzo, heldur er þetta refsing. Við verðum að vernda menninguna og í því samhengi fór Enzo yfir strikið í landsleikjaglugganum,“ sagði Rosenior.
Chelsea mætir Port Vale í 8-liða úrslitum enska bikarsins á morgun og spilar síðan mikilvægan leik við Manchester City í deildinni um næstu helgi.
Enzo kom til Chelsea frá Benfica árið 2023, nokkrum vikum eftir að hafa verið valinn besti ungi leikmaður HM í Katar. Hann kostaði Chelsea 106 milljónir punda og verið einn mikilvægasti hlekkur liðsins á síðustu árum.


