Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez hefur ýtt undir þann orðróm að Real Madrid hafi áhuga á að fá hann frá Chelsea í sumar, en bæði átrúnaðargoð hans spiluðu með Madrídingum.
Talið er að Enzo vilji fara frá Chelsea í sumar og er Enzo sagður efstur á óskalista Madrídinga.
Hann og Rodri, leikmaður Manchester City, hafa báðir verið orðaðir við Madrid, en Real Madrid er þó meira spenntara fyrir Enzo sem hefur spilað lykilhlutverk hjá Chelsea síðustu ár.
Það merkilega við þetta allt saman er að báðir eru opinberlega að daðra við Real Madrid. Rodri sagði á dögunum að hann gæti ekki hafnað áhuga stórliða í viðtali við Onda Cero og hefur Enzo spilað sama leik í viðtali við LuzuTV.
„Toni Kroos. Við spilum sömu stöðu og það var einmitt í leik Real Madrid og Chelsea á Bernabeu þar sem hann var svo áhrifamikill. Það sama á við um Luka Modric. Þetta var árið sem þeir hentu okkur út úr Meistaradeildinni. Þeir eru alveg stórkostlegir,“ sagði Enzo.
Það getur vel verið að þetta séu átrúnaðargoð hans en þetta er í annað sinn á stuttum tíma þar sem hann daðrar við Real Madrid og augljóst að draumur hans er að spila með spænska risanum.

