03.06.26 - 11:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Greko í tveggja leikja bann - Sjáðu atvikið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Christian Greko Jakobsen, leikmaður Þórs, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir að hafa sett höfuð sitt í höfuð Guðmundar Kristjánssonar í leik Þórs og Stjörnunnar á sunnudag.
Greko vildi fá vítaspyrnu og lét Guðmundur hann heyra það fyrir meintan leikaraskap - stóð yfir honum. Greko brást illa við og rak höfuð sitt í höfuð Guðmundar.
Danski leikmaðurinn verður því í leikbanni þegar Þór tekur á móti ÍBV (14. júní) og heimsækir svo FH (21. júní) í næstu tveimur leikjum.

Lestu um leikinn: Þór 1 - 3 Stjarnan
Hörður Ingi Gunnarsson, leikmaður Vals, verður þá í leikbanni þegar Valur heimsækir ÍA (16. júní) í næstu umferð Bestu deildarinnar. Hörður er kominn í leikbann fyrir uppsöfnuð gul spjöld (4).
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 15 | +38 | 40 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Keflavík | 15 | -4 | 19 |
| 6 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 15 | -11 | 12 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |