03.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Djemba Djemba kominn til Man Utd. (STAÐFEST)
Kamerúnski landsliðsmaðurinn Eric Djemba Djemba hefur skrifað undir samning við Manchester United sem greiddi franska félaginu Nantes 3,5 milljónir punda fyrir hann. Djemba er 23 ára gamall, hann gerði fimm ára samning við ensku meistarana og er annar leikmaðurinn sem staðfest kaup hafa verið gerð á í sumar, hinn var David Bellion sem kom fyrr í vikunni frá Sunderland.
