Charlton Athletic 0 - 1 Millwall
0-1 Jake Cooper ('81 )
0-1 Jake Cooper ('81 )
Millwall lagði Charlton í eina leik dagsins í ensku Championship deildinni.
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Millwall þriðja leikinn í röð eftir að hafa skorað gegn Derby. Jón Daði er skráður meiddur samkvæmt upplýsingum Flashscore.
Eina mark leiksins skoraði varnarmaðurinn Jake Cooper þegar um tíu mínútur lifðu leiksins í kvöld. Markið kom Milwall upp um þrjú sæti en þrjú lið geta náð Millwall því þetta var fyrsti leikur 41. umferðar.
Millwall er tveimur stigum frá Cardiff sem situr í neðsta umspilssætinu. Charlton er á sama tíma þremur stigum fyrir ofan Stoke sem er í efsta fallsætinu.
Athugasemdir