03.08.04 - 17:26
Hafliði Breiðfjörð
Le Tallec til St Etienne (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Antony Le Tallec miðvallarleikmaður Liverpool gekk í dag í raðir St Etienne og gerði eins árs lánssamning við franska liðið sem hefur ekki möguleika á að kaupa leikmanninn í kjölfarið. Þetta kom fram í tilkynningu franska félagsins í dag en Le Tallec er franskur U-21 árs landsliðsmaður sem var fyrstu leiktíðina eftir að hann var keyptur til Liverpool á láni hjá Le Havre ásamt félaga sínum Sinima Ponguelle.
Tallec er nú 19 ára gamall og hefur leikið 23 leiki með Liverpool, alla á síðustu leiktíð og skorað í þeim eitt mark í UEFA Cup leik.
,,Ég vildi að fólk sæi mig og ég gæti spilað í heila leiktíð. Ég tel að hjá St Etienne fái ég tækifæri til þess." sagði leikmaðurinn í dag.
,,Ég vildi að fólk sæi mig og ég gæti spilað í heila leiktíð. Ég tel að hjá St Etienne fái ég tækifæri til þess." sagði leikmaðurinn í dag.
