Fotbolti.net
03.10.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Antonsson til Fylkis. (staðfest)

Kjartan Antonsson leikmaður ÍBV er á förum til Fylkis en hann skrifaði undir samning hjá félaginu í kvöld. Kjartan er miðvörður en Fylkir er með tvo sterka miðverði þannig að það kemur verulega á óvart að félagið kaupi svo sterkan miðvörð fyrir næsta sumar. Leiðir þetta líkum að því að annað hvort verði Þórhallur Dan Jóhannesson í sókninni hjá Fylki næsta sumar eða, það sem líklegra er, að Ómar Valdimarsson sé að íhuga að leggja skóna á hilluna en hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.