Fotbolti.net
03.10.26 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson

Daníel Ingvar heim í Hauka (Staðfest)

Daníel Ingvar heim í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Daníel Ingvar Ingvarsson er kominn aftur heim í Hauka eftir að hafa leikið með Fjölni undanfarin ár.
Daníel er fæddur árið 2004 og uppalinn í Haukum en gekk til liðs við Fjölni árið 2021.

Á fyrsta ári sínu í Grafarvogi lék hann með Vængjum Júpíters, venslafélagi Fjölnis, og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í 3. deild.

Hann lék áfram með Vængjunum árið eftir en kom einnig við sögu í sjö leikjum með Fjölni í Lengjudeildinni og skoraði tvö mörk.

Daníel fékk stærra hlutverk hjá Fjölni og lék alls 60 leiki á næstu þremur tímabilum. Hann er nú kominn aftur til Hauka sem tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni með því að vinna 2. deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.