Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 04. janúar 2020 11:49
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið dagsins: Jóhann Berg og Jón Daði byrja
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley í fyrsta sinn síðan hann meiddist í byrjun október.

Burnley tekur á móti Peterborough í þriðju umferð enska FA bikarsins í dag og teflir Sean Dyche fram sterku byrjunarliði.

Jón Daði Böðvarsson er þá í byrjunarliði Millwall sem tekur á móti bikarrisunum í Newport County, sem leika í D-deildinni en eru frægir fyrir að slá stórlið úr bikarnum.

Newcastle er eina úrvalsdeildarfélagið fyrir utan Burnley sem hefur leik á næsta klukkutímanum.

Steve Bruce ætlar ekkert að gefa eftir gegn Rochdale og mætir til leiks með sterkt byrjunarlið. Miguel Almiron, Christian Atsu og Joelinton eru meðal byrjunarliðsmanna.

Burnley: Hart, Lowton, Tarkowski, Long, Pieters, Lennon, Hendrick, Cork, Guðmundsson, Rodriguez, Wood
Varamenn: Koiki, Taylor, Mee, Peacock-Farrell, Westwood, Bardsley, Vydra

Millwall: Bialkowski, McCarthy, M. Wallace, Cooper, Smith, Pearce, Molumby, Mahoney, Böðvarsson, Skalak, Mitchell
Varamenn: Steele, Hutchinson, Brown, Ferguson, J. Wallace, O'Brien, Bradshaw

Newcastle: Dubravka, Yedlin, Krafth, Fernandez, Hayden, Atsu, S. Longstaff, M. Longstaff, Almiron, Muto, Joelinton
Varamenn: Darlow, Ki, Ritchie, Lejeune, Coss, Sörensen, Allan
Athugasemdir
banner
banner