Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 04. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Man Utd heimsækir Wolves í bikarnum
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin er farin í pásu en boltinn heldur áfram að rúlla og nú er komið að útsláttarkeppni enska FA bikarsins.

Átta leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport og aukastöðvum í dag. Veislan hefst í hádeginu þegar Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka þá móti Peterborough á sama tíma og Millwall, með Jón Daða Böðvarsson innanborðs, fær Newport County í heimsókn.

Fulham mætir Aston Villa í áhugaverðum slag sem fer af stað á sama tíma og viðureign Southampton og Huddersfield.

Leicester City tekur svo á móti Wigan á meðan Manchester City fær Port Vale í heimsókn en stærsti leikur dagsins fer fram í Wolverhampton.

Þar tekur Wolves á móti Manchester United og er skylduáhorf á þann leik.

Leikir dagsins:
12:31 Birmingham - Blackburn
12:31 Bristol City - Shrewsbury
12:31 Burnley - Peterboro (Stöð 2 Sport 2)
12:31 Millwall - Newport
12:31 Rochdale - Newcastle (Stöð 2 Sport)
12:31 Rotherham - Hull City
15:01 Brentford - Stoke City
15:01 Brighton - Sheff Wed (Stöð 2 Sport 4)
15:01 Cardiff City - Carlisle
15:01 Fulham - Aston Villa (Stöð 2 Sport)
15:01 Oxford United - Hartlepool
15:01 Preston NE - Norwich
15:01 Reading - Blackpool
15:01 Southampton - Huddersfield (Stöð 2 Sport 3)
15:01 Watford - Tranmere Rovers
17:31 Bournemouth - Luton
17:31 Fleetwood Town - Portsmouth
17:31 Leicester - Wigan (Stöð 2 Sport 3)
17:31 Man City - Port Vale (Stöð 2 Sport 2)
17:31 Wolves - Man Utd (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner