Fotbolti.net
03.10.26 - 19:23
Elvar Geir Magnússon

Arnar: Hefur verið frábær fyrir mig persónulega

Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var léttur á fréttamannafundi eftir 3-0 sigurinn gegn Búlgaríu í þjóðadeildinni í dag.

Hann var fyrst spurður út í frammistöðu fyrirliðans Orra Steins Óskarssonar sem heldur áfram að skora í landsliðstreyjunni og skoraði tvö mörk í leiknum.

„Hann hefur verið frábær fyrir mig persónulega, við söknuðum hans mikið þetta eina ár sem hann missti af í fyrra. Hann er á góðum stað með sínu félagsliði og kemur með orku inn í landsliðið. Nú er hann að taka ábyrgð líka sem fyrirliði innan vallar sem utan og ég gæti ekki verið meira ánægður með hvernig hann er að þróast sem leikmaður og pesóna," segir Arnar.

Orri hefði getað skorað þrennu en brást bogalistin af vítapunktinum. Var ekki leiðinlegt að sjá hann missa af þrennunni?

„Honum fannst það allavega mjög leiðinlegt. Hann var mjög lengi að hafa jafna sig og og tilkynnti okkur eftir leik að hann væri hættur að taka víti, en það hefur vonandi bara verið í mómentinu," segir Arnar brosandi.

„En hann náði svona svona 70% að bæta upp fyrir það með því að leggja upp á Mikka (Mikael Egil) hérna í lokin. Tvö mörk og stoðsending í landsleik er ekki slæmt."
Mikael í bann, Gylfi í myndatöku og lykilmenn laskaðir - Arnar hyggst bæta í hópinn
TENGT EFNI

Mikael í bann, Gylfi í myndatöku og lykilmenn laskaðir - Arnar hyggst bæta í hópinn

Erfiðar aðstæður
Athygli vakti að Arnar gerði sex breytingar á byrjunarliðinu. Hvenær ákvað hann að breyta svona miklu?

„Í rauninni bara eftir að hafa skoðað ástandið á hópnum og leikmönnum. Það voru einhver veikindi, einhver meiðsli og svo einhver þreytumerki líka. Jú, þetta var djarft en við erum alltaf að tala um að við séum búin að stækka hópinn og svo ef þú reynir ekki á hann þá er bara allt þetta tal bara eitthvað hjal þannig að þú verður einhvern tímann að henda mönnum út í djúpu laugina og sjá úr hverju þeir eru gerðir."

„Þetta voru erfiðar aðstæður í dag, ég meina, völlurinn er frábær en hann bauð upp á mistök. Hann var sleipur og háll sem hjálpaði okkur mikið í mörkunum til dæmis en tæknilegir feilar í leiknum voru líka margir. Við sáum það öll að það var óvenjulega mikið af sendingafeilum og slæmum snertingum en við héldum baráttunni áfram alla leið. Við vorum ekki of mikið að svekkja okkur yfir leikurinn var ekki að þróast eins og við nákvæmlega vildum hann þróast. Það var mikið um stopp eins og Búlgararnir voru greinilega að tefja og ég var svona ánægður með það að við héldum haus og vorum að bíða eftir rétta tækifærinu til þess að láta ljós okkar skína," segir Arnar.

Skugginn af gullaldarliðinu
Það verður að viðurkennast að þetta búlgarska lið er ekki upp á marga fiska. Eins og fjallað hefur verið um þá hefur verið mikið hrun á fótboltanum í Búlgaríu.

„Já, þetta er náttúrulega ekki liðið sem við vorum að alast upp við. Svo náttúrulega kemur gamla góða sjálfstraustið inn og allur
pakkinn. Ég hef oft talað um að skugginn hérna af gullöldinni okkar er að hanga yfir Laugardalsvelli en ímyndaðu þér skuggann
af þeirra gullaldarliði að hanga yfir þeirra liði. En þeir eru stórir og líkamlega sterkir."


Arnar gerði tvöfalda breytingu í hálfleik. Hver var ástæðan fyrir því?

„Mér leið eins og Búlgararnir myndu fara í meðvindinn, fara að dæla löngum boltum og mögulega fá einhver föst leikatriði og þess háttar. Ég vildi fá ferskari lappir, fá meiri vigt líka aðeins framar. Andri Lucas kæmi inn og myndi halda boltanum fyrir okkur og að vinna skallabolta og við gætum búið eitthvað til í kringum hann. Það væri svona meiri, bara að sætta sig við það að þetta var ekki tiki-taka móment. Þetta var móment til þess að vera þéttari og styrkja vörnina aðeins og svo var planið að setja Gulla og Gylfa mjög fljótlega inn á í seinni hálfleik þannig að þetta yrði massífara."
Orri Steinn Óskarsson.

Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar: Hefur verið frábær fyrir mig persónulega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar: Hefur verið frábær fyrir mig persónulega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar: Hefur verið frábær fyrir mig persónulega
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.