Fotbolti.net
04.10.26 - 15:37
Brynjar Ingi Erluson

Vill Man City niður um deild - „Allir vissu af þessu“

Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Man City (t.v.) ásamt Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni félagsins, Pep Guardiola og Txiki Begiristain

Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Man City (t.v.) ásamt Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni félagsins, Pep Guardiola og Txiki Begiristain

Canon

Mynd: EPA

Jesse Marsch, þjálfari kanadíska landsliðsins, segist ekki hissa á því að Manchester City hafi verið fundið sekt um alvarleg brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Marsch var spurður út í mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Man City í viðtali við Guardian. Hann stýrði Leeds frá 2022 til 2023 og segist strax þá hafa séð að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera.

Hann nefndi sumargluggann 2022 þegar bæði Leeds og Man City komu út í plús á leikmannamarkaðnum og Leeds hefði þurft að halda aftur af sér í kaupum vegna fjárhagsstöðu félagsins.

Marsch benti einnig á að Everton og Nottingham Forest hefðu síðar fengið stigafrádrátt fyrir brot sem náðu yfir tímabilið þegar Leeds féll. Bæði lið héldu sér þá uppi á kostnað Leeds.

„Það ætti að refsa Manchester City harðlega. Mér finnst að það ætti að fella liðið. Og allir vissu af þessu,“ sagði Marsch.

„Þetta sumar vorum við eina félagið ásamt Man City sem kom út í plús. Hjá okkur var það raunverulegur hagnaður því við seldum Raphinha og Kalvin Phillips. Við áttum töluvert eftir af þeim peningum þegar við vorum búnir að kaupa en fjárhagsstaðan var þannig að við urðum að halda í hluta þeirra. Eigendurnir voru ekki með djúpa vasa.“

„Þegar Man City sagðist líka hafa komið út í plús hugsaði ég bara: 'Eruð þið að grínast? Er þetta einhver brandari?'‘“


Marsch setti einnig spurningarmerki við kaupverðið á Erling Haaland.

„Þegar þeir sögðust hafa keypt Erling Haaland á 52 milljónir punda hugsaði ég: ‚Já, einmitt.‘ Maður vissi að eitthvað stemmdi ekki en hvað gat maður gert? Maður rétti bara upp hendur og sagði: ‚Svona er fótboltinn,‘“ sagði hann.
Jesse Marsch

Jesse Marsch

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.