04.10.26 - 14:25
Brynjar Ingi Erluson
María hafði betur gegn Ásdísi í erkifjendaslag

María Catharina spilaði með Djurgården

Mynd: Djurgården

María Catharina spilaði með Djurgården

Mynd: Djurgården

María Catharina Ólafsdóttir Gros lék með Djurgården sem vann 2-1 sigur á AIK í erkifjendaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Mikill rígur er á milli Stokkhólmsliðanna AIK og Djurgården. María var í byrjunarliði Djurgården í grannaslagnum en Ásdís Karen Halldórsdóttir lék með AIK.
Matilda Plan, fyrrum fyrirliði Djurgården, kom AIK yfir en heimakonur sneru leiknum sér í hag með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungnum og unnu 2-1. Djurgården er í 10. sæti með 24 stig en AIK í fjórða sæti með 34 stig.
Tveir Íslendingar komu við sögu þegar Nordsjælland og Köge gerðu 2-2 jafntefli í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar. Hin 17 ára gamla Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn á hjá Nordsjælland og Emelía Óskarsdóttir hjá Köge.
Köge er áfram á toppnum með 25 stig en Nordsjælland í öðru sæti með 21 stig.
Í Noregi kom Sóley Edda Ingadóttir inn á sem varamaður hjá Molde sem tapaði 3-0 fyrir Stabæk. Molde er í sjöunda sæti með 18 stig.