Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bayern Munchen þegar liðið burstaði BIIK Kazygurt frá Kasakstan 6-1 í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í morgun.
Karólína kom inn á sem varamaður á 65. mínútu og þremur mínútum síðar var hún búin að skora.
Um var að ræða fimmta mark Bayern í leiknum en liðið er með frábæra stöðu fyrir síðari leikinn í næstu viku.
Karólína kom til Bayern frá Breiðabliki í vetur en þetta var fyrsta mark hennar fyrir þýska stórliðið.
Bayern er með ógnarsterkt lið en það hefur unnið alla fjórtán leiki sína í þýsku Bundesligunni í vetur.
Athugasemdir