Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. apríl 2021 18:20
Aksentije Milisic
Leikmenn Valencia gengu af velli vegna kynþáttaníðs
Mynd: Getty Images
Cadiz og Valencia eigast við þessa stundina í La Liga deildinni á Spáni.

Leiðinlegt atvik átti sér stað í leiknum en leikmenn Valencia gengu af velli og til búningsherbergja eftir að Mouctar Diakhaby, leikmaður liðsins, varð fyrir meintum kynþáttafordómum.

Leikmenn Valencia voru í klefanum í fimm mínútur en Diakhaby lenti þá saman við Juan Cala, leikmann Cadiz.

Valencia skrifaði þá á Twitter að Diakhaby hafi orðið fyrir kynþáttafordómum. Þetta atvik gerðist í fyrri hálfleik en Diakhaby sjálfur sagði liði sínu að fara aftur á völlinn og klára leikinn.

Þegar þetta er skrifað er staðan 1-1 í leiknum og um hálftími eftir. Diakhaby var tekinn af velli eftir atvikið.




Athugasemdir
banner
banner
banner