13.11.26 - 12:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Simon Tibbling yfirgefur Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram greindi frá því rétt í þessu að Simon Tibbling væri búinn að yfirgefa félagið. Hann hefur verið sterklega orðaður við Lengjudeildarmeistarana í Aftureldingu.
Tibbling, sem er 32 ára, kom til Fram fyrir tímabilið 2025, átti frábært tímabil og var valinn í lið ársins 2025. Á síðasta tímabili minnkaði hlutverk hans í hlutverkinu, sérstaklega þegar leið á og heyrðist af því að Fram væri tilbúið að hlusta á tilboð í sænska miðjumanninn.

TENGT EFNI
Afturelding hefur mikinn áhuga á Tibbling
Tibbling varð Evrópumeistari með sænska U21 landsliðinu 2015 og á ferlinum hefur hann einnig orðið danskur og hollenskur bikarmeistari.
Úr tilkynningu Fram
Á tveimur tímabilum í Úlfarsárdal lék Simon 43 leiki í Bestu deildinni og skoraði fjögur mörk.
Fram þakkar Simon innilega fyrir hans framlag til félagsins, fagmennsku og allar góðu stundirnar í bláu treyjunni.
Við óskum Simon og fjölskyldu hans alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.