Fotbolti.net
04.08.04 - 07:26
Elvar Geir Magnússon

Perrotta og Ferrari til Roma (Staðfest)

Perrotta og Ferrari til Roma (Staðfest)
Canon
Roma hefur styrkt sig fyrir komandi tímabil með því að kaupa tvo ítalska landsliðsmenn. Það eru þeir Simone Perrotta frá Chievo og Matteo Ferrari frá Parma. Perrotta er 26 ára miðjumaður sem fæddur er í Englandi en hann á að fylla skarð Emerson sem kominn er til Juventus.
Perrotta byrjaði sinn feril í Seríu-A hjá Juventus áður en hann var seldur til Bari og Chievo. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Tyrklandi í nóvember 2002 og lék með liðinu í öllum þremur leikjunum á EM. Hann skoraði m.a. í 2-1 sigrinum gegn Búlgaríu.

Ferrari er einnig fyrrum leikmaður Bari en kaupverð á honum er ekki gefið upp. Um er að ræða 24 ára varnarmann. Parma fær 19 ára leikmann, Damiano Ferronetti, frá Roma í skiptum. Ferrari spilaði sinn fyrsta landsleik einnig gegn Tyrklandi og var í ítalska hópnum á EM.

Ferrari var fyrr í sumar orðaður við Manchester United en hann verður í ítalska hópnum á Ólympíuleikunum en kemur aftur til baka í Roma fyrir fyrsta leik liðsins í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.